Veröld Bláa Lónsins
„Einstakur jarðsjór Bláa Lónsins er óendanleg uppspretta þróunar hvort sem um ræðir þróun á mismunandi þjónustuþáttum, vörum eða upplifunum.”
Vöru- og þjónustuframboð Bláa Lónsins er afar fjölbreytt.
Það byggir þó allt á hinum einstaka jarðsjó Bláa Lónsins sem “National Geographic” útnefndi árið 2012 sem eitt af 25 undrum veraldar. Einstakt vistkerfi jarðsjávarins, virkni efna hans, uppruni og hinn staðfesti lækningamáttur gerir hann einstakan á heimsvísu. Jarðsjórinn á sér engan líka.
Jarðsjór Bláa Lónsins er óendanleg uppspretta þróunar hvort sem um ræðir þróun á mismunandi þjónustuþáttum, vörum eða upplifunum.
Ný og byltingakennd húðvörulína, BL+ var kynnt á vormánuðum. Með henni er tengingin á milli húðvara Bláa Lónsins og Retreat heimsins styrkt enn frekar. Á haustmánuðum voru sérstakar flotmeðferðir kynntar sem byggja á djúpslökun og hafa þær mælst mjög vel fyrir.